Náði að klára áskorunina og koma peysunni í skókassann á réttum tíma, reyndar ekki að gera hárband í stíl en það er nú allt í góðu. Ljótasta garnið mitt varð sem sagt á endanum að þessari peysu sem er hreint ekki svo ljót! Hún hefur meira að segja marga góða kosti, t.d. að hana má setja í þvottavél á hvaða kerfi sem er án þess að hún skemmist og svo er hálsmálið líka vel vítt þannig að barnið getur auðveldlega klætt sig í henni og úr vandræðalaust. Ég get þó fullyrt að það þarf eitthvað mikið að koma til að ég kaupi aftur akrýlgarn - það er ekki fyrir mig. Því miður á ég smá afgang af því (andvarp) og þarf því að taka það upp aftur einhverntimann seinna, sennilega bara í dúkkuföt.
Og hér er ein af svona þúsund myndum sem við tókum af börnunum prúðbúnum á leið í dásamlega níræðisafmælisveislu hjá langalangömmu þeirra Hermínu. Sjá þessi krútt sem ég á! Dressið hennar Óskar prjónaði mamma vinar okkar en hún er mikil prjónakona og gerir ofsalega fallegar flíkur.
Að lokum ætla ég að minnast á að þótt nú hafi verið fremur lítil virkni á þessu bloggi síðustu vikur stendur það til bóta og von er á mörgum færslum á næstu vikum. Mér þykir mjög vænt um allar heimsóknirnar ykkar og komment eru auðvitað alltaf skemmtileg. A bientot!
Allt garn hefur kosti og galla en peysan er falleg og vel heppnuð og mun ábyggilega koma sér vel fyrir stúlkuna sem fær hana. Og börnin - já þau eru krútt - og þeirra er saknað af ömmu í sveitinni. Hlakka til að fá örari fréttir á blogginu þínu. Knús á ykkur öll, mamma
ReplyDeleteVið söknum þín líka mamma :*
DeleteHæ Sigurlaug!
ReplyDeleteMér fannst ég verða að skilja eftir kveðju. Ég kíki nefnilega reglulega hingað inn- finnst bloggið þitt svo skemmtilegt. Falleg mynd af börnunum, þau eru dæmalaust sæt og fín.
Kveðja,
Jóna Kristjana
Takk fyrir kveðjuna og falleg orð! Vona að þú hafir það gott :)
Delete