Í morgun kláraði ég loksins vettlingana Litlar stjörnur, sem voru garnbanaáskorun októbermánaðar. Ég viðurkenni að ég var orðin pínulítið stressuð að ná ekki að klára fyrir mánaðamót en þetta slapp því enn eru tveir dagar í nóvember. Ekki það að þetta sé svo flókið og tímafrekt verkefni, þvert á móti, ég bara byrjaði alltof seint. Svo gerði ég líka smávægilegar stærðarbreytingar en misreiknaði mig aðeins í þeim og þurfti að rekja tvisvar upp áður en ég náði þessu réttu, það tafði talsvert. Mér finnst þetta mjög sætir vettlingar og mynstrið sérstaklega skemmtilegt. Það fór rosalega lítið af garni í þá þannig að mig langar að prófa að nota mynstrið kannski líka í húfu og vettlinga á Ósk - held að það kæmi vel út og nenni vonandi einhverntímann að tjékka á því. Það eru svo mörg verkefni á listanum yfir það sem mig langar að afreka í handavinnunni að ég held að ég kæmist ekki yfir að prjóna/hekla þau öll þótt ég gerði ekkert annað allan sólarhringinn! Kannast nokkuð fleiri við það?
En þá að nóvemberáskorunni! Þar sem aukaáskorunin er að nota ljótasta garnið sitt, þ.e.a.s. það garn sem manni sjálfum finnst ljótast, dró ég fram tvær stórar sjálfmynstrandi akrýldokkur sem ég keypti á fáránlega lágu verði í Rúmfó fyrir næstum fjórum árum. Þetta var svona korteri eftir að ég byrjaði að prjóna og hekla og mér fannst algjör snilld að hægt væri að fá svona mikið af garni fyrir svona lítinn pening. Svo þegar ég ætlaði að vinna úr garninu komst ég að því að mér finnst liturinn frekar ljótur og akrýl-áferðin alveg forljót. Ég er búin að byrja á nokkrum verkefnum úr þessu garni en alltaf rakið upp því ég er bara ekki nógu hrifin af því. En þar sem við ætlum að vera með í Jól í skókassa þetta árið datt mér í hug að sennilega væri sárfátækt barn í útlöndum ekki jafn neikvætt gagnvart þessu garni og ég og hefði jafnvel bara gagn og gaman að því að fá peysu úr því. Þess vegna ætla ég að styðjast við uppskrift úr fyrri Prjónaperlubókinni og að einfaldri laskapeysu og reyna þannig að nota allt garnið. Ég stefni á að hún verið fyrir stelpu 3-6 ára og ef það verður afgangur ætla ég að gera eyrnaband í stíl. Og hér er aðaláskorunin: Þetta verður að vera tilbúið fyrir 8. nóv því 9. nóv er síðasti dagur til að skila inn skókössunum. Þannig að nú legg ég frá mér tölvuna og byrja á nóvemberpeysunni, ég prjóna ekkert svakalega hratt og veitir ekkert af tímanum...
Haha ég kalla þig góða að ætla að nota minnst uppáhalds garnið þitt. Það er fátt leiðinlegra en að vera með eitthvað agalega ljótt garn í höndunum - maður þarf alltaf að vera að horfa á það!
ReplyDeleteEkki það að mér finnst þetta garn ekkert agalegt, hlakka til að sjá það í peysu :)
Og fínir vettlingar!
Já takk - það er alveg glatað að prjóna úr garni sem manni er illa við einmitt af því að maður þarf alltaf að hafa það í höndunum og fyrir augunum. En þetta ágæta garn er sem betur fer næstum alveg búið núna!
Delete