Úlfur greyið hefur verið meira og minna lasinn alla vikuna. Það er ekkert alvarlegt að hrjá hann sem betur fer, bara leiðinda kvefpest sem veldur hósta, hita og slappleika. Við höfum því brallað ýmislegt saman hér síðustu daga; púslað, litað, leirað, byggt úr kubbum og fleira. Á mánudaginn skruppum við Ósk á kaffihús með góðum vinum úr Mývatnssveit og á meðan tóku þeir feðgar fram allt playmosafn heimilisins (sem er nú að verða ansi stórt). Þeir dunduðu sér lengi við að raða öllu upp og leika svolítið en áður en þurfti að taka saman svo hægt væri að borða kvöldmat á borðinu voru teknar nokkrar myndir. Mér finnast þessar myndir mjög skemmtilegar og þær minna mig á hvað það er gaman að leika sér :)
Sæl elsku frænka ! Ákvað að skilja eftir kveðju í þetta skiptið, kíki stundum hérna inn á hjá þér og finnst gaman að geta fylgst með þessari fallegu fjölskyldu sem þú átt :) Bestu kveðjur til ykkar
ReplyDeleteGaman að heyra frá þér! Vonandi sjáumst við svo bráðum í sveitinni. Bestu kveðjur sömuleiðis :)
Delete