Ég er ein af þeim fjölmörgu sem kíki reglulega inn á matarbloggið Ljúfmeti og lekkerheit og hef upp á síðkastið prófað að elda allskonar girnilegt sem ég hef rekist á þar. Til að gera langa sögu stutta hefur ALLT verið fáránlega gott og greinilegt að þarna er ekki verið að mæla með uppskriftum að ástæðulausu! Mágkona mín bakar stundum kanilsnúðaköku sem mér finnst ofboðslega góð og það kom mér því ekki á óvart þegar ég falaðist eftir uppskriftinni að hún var fengin af Ljúfmetissíðunni. Sjá hér. Ég á að vísu aldrei hvítt hveiti og sykur en notaði bara gróft og fín spelt til helminga í staðinn og rapadura hrásykur. Kakan mín varð því aðeins dekkri en hjá Svövu, eins og sést á myndinni hér að ofan, en samt mjöööög góð. Satt að segja er ég hálfpartinn með þessa köku á heilanum, alltaf að búa hana til og ég sem baka nánast aldrei!
mmmmm ég verð að gera þessa. :)
ReplyDelete