Þótt sumarið hefði mátt vera aðeins hlýrra og lengra er alveg ljóst að hér í Reykjavík er haustið skollið á. Ég er búin að finna fullt af gulum laufblöðum og veðrið er bara eins og kremið á kökuna - held ég hafi aldrei vitað svona mikla rigningu í svona marga daga í röð. En þá er ljómandi gott að rifja upp fallegan haustinnblástur á Pinterest, prjóna og hekla og glugga svo í Ikea-listann góða inn á milli. Hvað svo sem er framundan hjá ykkur vona ég að þið eigið dásamlegt haust og gangi allt í haginn!
No comments:
Post a Comment