Sunday, July 21, 2013

elskuleg póstsending


Ég elska að fá skemmtilega pakka og bréf í póstinum og varð því ekki heldur en ekki kát þegar þessi gersemi barst mér á föstudaginn! Hún Dúdda sem bloggar á Elskulegt gerði þessa fallegu mynd fyrir mig eftir pöntun og mikið hlakka ég til að ramma hana inn og setja á sinn stað, sem er í vinnslu eins og er. Myndir af því síðar! En hér á facebook síðu Elskulegt er hægt að skoða úrvalið af tilbúnum myndum og svo er hægt að senda póst og panta sérstaklega, hafi maður sérstaka liti eða orð í huga. 

Takk, Dúdda :)

Annars fór helgin að miklu leyti í að taka til í geymslunni, fara smá í Ikea og vinna í svefnherberginu, sem er alveg að verða tilbúið. Ef ég næ góðum myndum set ég kannski nokkrar hér inn en þangað til er bara ein af instagram. 


Við hættum við að hafa hinar ósýnilegu bókastoðir og keyptum bara svona pínulitlar hillur í Ikea í staðinn. Kemur mjög vel út og sparar þvílíkt pláss í litla svefnherberginu okkar. 

No comments:

Post a Comment