Fann þessa mynd einhverntímann á vefrölti - klárlega besti to do listi sem ég hef séð! Ég þekki nokkra to do lista aðdáendur og á það sjálf til að taka tryllt verkefnalistaköst af og til. Þá skrifa ég stundum hluti sem ég er búin að gera inn á listann, bara svo ég geti strikað þá út... jebb.
Ég er í einhverjum brjáluðum dugnaðargír þessa dagana, tengi það helst við hreiðurgerðartilhneigingu á meðgöngu og svo hefur nú ekki mikið annað verið í boði en lærdómur síðustu vikurnar þannig að það má segja að ýmis verkefni tengd heimili, vinum og kunningjum hafi setið á hakanum. Til að klára langan to do lista er svo að mínu mati nauðsynlegt að hafa hátt stillta tónlist og gott kaffi við höndina.
No comments:
Post a Comment