Ég er þessa dagana aðeins að breyta í herberginu hans Úlfs og finnst mjög gott að skoða myndir af fallegum barnaherbergjum á netinu til þess að fá innblástur í verkið. Þetta eru svo sem engar rosalegar breytingar sem ég er að gera, aðallega að flokka aðeins leikföngin og fækka þeim. Í svona litlum herbergjum eins og hann á er það alveg nauðsynlegt. Það er líka eins og hann leiki sér meira ef valmöguleikarnir eru ekki of margir og leikföngin flæða ekki úr öllum döllum og hillum. Annars er hans uppáhaldsiðja þessa dagana að hlusta á sögur og tónlist í litla geislaspilaranum sem við gáfum honum í jólagjöf og púsla/perla/byggja legó á meðan. Mjög kósí og alveg hægt að gleyma sér í því með honum!
Reyndar er hann að fá nýtt rúm, er að fara úr barnarúmi í fulla stærð, 200x90, og mig langar svo ógurlega að prjóna rúmteppi sem getur fylgt honum út ævina og gefa honum í 5 ára afmælisgjöf í haust. Ég er mjög hrifin af uppskriftinni af Vetrarbylgjuteppinu frá Pickles, sjá mynd hér fyrir neðan, en mig langar að gera það í grænum tónum. Nú er bara að finna a) garn sem er ódýrt en samt fallegt b) tímann til að prjóna rúmteppi í fullri stærð. Trallalalalalalala.


































